Ætla nú að hripa niður nokkrar línur hérna fyrir dyggustu
aðdáendurna sem virðast líta hérna við annað slagið
.
En það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að partý
ársins var haldið fyrir skömmu. Það er svo sem ekki erfitt að
toppa titilinn partý ársins þ.s eina sem þarf er góðmennur, ja,
nokkuð stór hópur og stemmning. Þ.a það er spurning um hvenær
næsti toppur verður haldinn. Ég ætla svo sem ekki að láta
afskiptasemina mína ráða öllu, en mér sýnist að e-r hafi tekið það
að sér miðað við könnunina hér til hliðar
. Sem er bara
gott mál, þá losniði við tuðið í mér...
Síðan er næsta mál á dagskrá að endurnýja myndirnar hér að
ofan... ef þið hafið einhverjar óskir um sjálfsmyndir þá megiði
endilega láta þær í ljós hér að neðan, en held samt að þið hafið
engu um það að ráða, þ.s Guðný stílisti sér algjörlega um þessi
mál. Reyni samt að hlífa engum muhahaha...
Jæja, held það sé kominn svefngalsi í mína... kveð að sinni...
ég